Nú er búið að ná nokkrum aurum af dananum.

Hvernig ætli fjárfestar komi út úr þessu. Þetta virðist bitna mest á danska ríkinu og þær tekjur sem fengust eru líklega komnar á bankareikninga eða í annan rekstur sem svo fer í annan rekstur osf. Þannig að það verður spennandi að sjá framhaldið á þessu. Hvernig daninn sækir þessa aura.
mbl.is Reikningarnir vegna Nyhedsavisen hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessaður litli bróðir! ég er núna loksins að fatta þessa síðu hjá þér. Hvernig hefur þú það þessa dagana? Ég er búin að fá smá fréttir frá Færeyjum af Danmerkurferðinni. Héðan er bara þetta venjulega ,borða,sofa, smá golf og svo vinna. Ég er farin að vinna aftur í bankanum og ætla að vinna eitthvað fram á vorið,það virðist vera svolítið erfitt að hætta alveg! Birgir er að vinna ennþá á vellinum, hann á eftir eina vakt og er að taka smá auka fyrir einn sem er farinn til vetrardvalar í Tælandi! Ekki amalegt það. Magnús og fjölskylda voru að fara á Snæfellsnesið í dag, klúbburinn þar á 10. ára afmæli. Laufey og fjölskylda eru að vinna og í skolanum, Ágúst er að fara að keppa í síðasta kaupþingsmótinu um helgina,hann er orðinn ansi góður, kominn með rúma 10 í forgjöf,s.s.orðinn betri en ég!!Vonandi hefur þú það gott og gengur vel, kær kveðja,koss og knús,Inga systir

Inga Magg (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband