Hvað næst

Það er aðkallandi að;

gera áætlun um eldsneitisnotkun í landinu, hvaða orkugjafa við ætlum að reyna og hvað mikklum aurum við ætlum að eyða í rannsóknir og tilraunir. Rafvæða/Vetna allan opinberan bílaflotann til að byrja með, færa okkur svo rólega í rútur og flutningabíla og láta einkabílana fara eftir markaðslögmálum. Miðað við bensínverðið, þá ætti það að fara á skrið núna.

gera áætlun um hálendið, deiliskipuleggja það með tilliti til ferðamennsku, mannvirkja, virkjunna, vega/slóða. þetta hlýtur að vera forgangsverkefni.

gera áætlun um atvinnusvæði á landsvísu, eigum við að setja niður olíuhreynsunarstöðvar í byggðarlögum þar sem frekustu fyrirgreiðsluþingmennirnir óska, eða á að gera raunhæft mat á því út frá samgöngum, umhverfismati, aðgangi að sjó, legu byggðar osf. En þetta þarf að farað koma.


Skuld

Á það ekki betur við.?
mbl.is Fimmvörðufjall?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég kaus um Icesave og ekkert annað.

Það hafði ekkert að gera með Sjálfstæðisflokkinn eða ríkisstjórnina. Hvernig dettur formanni sjálfstæðisflokksins í hug að reyna að túlka þetta sem sigur fyrir sjálfstæðisflokkinn. Henn hlítur að vera hluti af fimmprósentunum hanns Þráins.? Sigmundur Davíð er svo sannarlega í réttum flokki, það má nú segja. Hann er holdgerfingur framsóknarflokksins í dag, sem að mínu viti er stjórnað af ungum tækifærissinnum. Svo finnst mér alltaf jafn skrítið að Hreyfingin skuli sitja á þingi. Hún var aldrei kosin.!


Gjaldþrot

Já maður er pirraður þessa dagana og lítið jákvætt í sarpnum.

Tónlistarhús með enga aðstöðu fyrir óperur og söngleiki. Hvað voru menn að hugsa, það er ekki hægt að setja upp alvöru söngleiki, né stórar óperur í þessu húsi, þó að það sé búið að eyða töluverðum upphæðum í að gera aðstöðu fyrir hljómsveit eftirá, en það dugir ekki til. Of seint í rassinn gripið.

Norðurbakkinn í Hafnarfirði.. hræðilegt slys og þeir sem að því stóðu ættu að fara í tugthúsið.

Nýtt sjúkrahús við Landspítalann. Þarna er verið að gera stór mistök. Sjúkrahús á þessum stað er mistök. Fara með hann í alfaraleið og gera gamla Landspítalann að menningar torfu, listaskóla, leikhús, hótel, safnahús (nýtt óperuhús) osf.

Samgöngumiðstöð á ekki að sameina rútur, strætó og flug. Er ekki í lagi.?

jæja, varð að koma þessu frá mér.


Banka vaktin

já þetta er kannski þreytt, en hvernig væri að snillarnir í vöktunum gerðu þátt um bankamennina. Þar sem Ólafur Ragnar væri snökktandi bankastjóri og Tom Jones vannabí, Bjarnfreðarson væri aðal sjeníið hjá bankanum í að koma undan aurum osf. Þetta gæti orðið dálítið skemmtilegt... eller hur.?

Mætum öll full í vinnuna...

Mætum full í vinnuna á morgun, það er að segja þeir sem vinnu hafa, og tökum einn Simma Örn á þetta.
Ef séffinn er með læti, þó að við séum búin að ljúga að honum að við séum edrú, nú þá kílum bara gaurinn, vúbb,,, tökum einn Árna Jónsen á kallinn.

Hvaða bull er þetta. Mér finnst að það eigi að refsa fólki sem er að ljúga á alþingi og hýrudraga það miskunarlaust. Láta 25% af launum þess renna til góðgerðarmála. Ef menn mæta fullir í vinnuna og dofnir vinnufélagar reyna að notfæra sér þetta til að koma ódýrum höggum á viðkomanadi... í stað þess að taka viðkomandi afsýðis og benda honum á að fara nú bara heim eða þegja. Hýrudraga þau öll og gefa það til mæðrastyrksnefdar.

Maður var búinn að missa nánast allt álit á alþingi þegar sjálfstæðismenn og samfiylkingin voru í sínum sandkassaleik fyrir hrunið, en þetta er ekkert að skána held ég.

Rekum alla og ráðum í þetta útlendinga sem verktaka. Sérfræðinga sem einbeita sér af því að leysa þetta mál og blanda ekki hreppspólitík í allt. Ég get varla horft upp á þetta lengur. Menn verða að fara taka sig saman í andlitinu og einbeita sér "SAMAN" að færsælli lausn.

Hvað er svo Hannes Hólmsteinn að þvælast upp á dekk. Slapp hann út úr búrinu sínu heima hjá Davíð. Er þetta eitthvert galdra útspilið hjá þeim D mönnum að senda HH út og gera allt vitlaust. Fáum við kannski Haldór RÍKA Ásgrímsson frá framsókn til að laga klúðrið hjá strák skömmini þar á bæ.


Er þetta satt...er þetta búið ?!

Já partýið er búið og viðeigandi að saklaus jómfrúin trúi þessu ekki. Draumaprinsinn er farinn og skilur allt eftir í rjúkandi rúst. Skemmtileg tilviljun líka að hún skuli heita Jóhanna.

Is it true, is it over.


"Loftbóluflokkur" Vertu sæll, Sigmundur Davíð.

Æ hvað þetta er fáránlega heimskulegt af formanni flokks. Sama hvort hann Sigmundur hefur rétt fyrir sér eður ei, þá held ég að hann hafi formlega byrjað sitt pólitíska sjálfsmorð með þessu. Vertu sæll SD.!

Svo er það líka akkúrat svona kosningastælar sem væri gott að vera laus við að svo stöddu. Held að fólk vilji frekar sjá samstöðu og málefnalega umræður þar sem að mikið er undir að þessu sinni. Á þetta við alla þingmenn.


mbl.is Undrandi á orðum Sigmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Canada er ekki slæmur kostur.!

Ég hef sagt það áður og segi enn, að í stað þess að vera að horfa til ESB eigum við að fara í vest norden samvinnu með með Færeyingum, Grænlendingum með mintbandalagi með Canada og fá gott lán til olíuleitar og vinnslu frá Norðmönnum. Þetta getur ekki klikkað.

Forgangur...?

Mér finnst þetta gefa tilefni til að skoða málið enn betur, og þá með mikilli gagnrýni. Ef smbandið er svona áfjátt um að fá okkur inn, þá sjá þeir fyrir sér að geta notað þetta á einn eða annan hátt. Þeir gera þetta ekki af gæskunni einnisaman. Hvað vakir fyrir þeim með Ísland.?
mbl.is Fengjum forgang inn í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband